AKUREYRARVÖLLUR

VerkheitiAkureyrarvöllur
StaðurAkureyri
StærðDeiliskipulag
VerkkaupiAkureyrarbær

Framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis. Tillaga unnin í samstarfi við Landslag.

Tillagan Heimavöllur byggir á einfaldri en öflugri sýn um að styrkja miðbæ Akureyrar með samfelldri hringrás mannlífs, upplifana og vaxtar til næstu áratuga. Tillagan byggir á tveimur megin skipulagsinngripum. Brekkunni á milli Brekkugötu og Hólabrautarr, þar sem verður íbúðabyggð að mestu leyti (Brekkubyggð) og vellinum og umhverfi hans, þar sem verður blönduð byggð og upplifun (Vallarbyggð). Á milli þeirra liggja þrír meginásar; hreyfiás, grænn ás og blár ás. Ásarnir tengja svæðin innbyrðis og við nærliggjandi umhverfi og mynda auk þess samfellda upplifun sem fléttar saman hreyfingu, náttúru og vatn og styrkir heildarmynd svæðisins.

Lagt er upp með að hér sé líf allan daginn, allt árið, með samspili almenningsrýma, virkra jarðhæða og fjölbreyttrar íbúasamsetningar. Athafnir dagslegs lífs fléttast inn í stutt samtöl, óvænta fundi og þátttöku í nærsamfélagi í gegnum lifandi útisvæði, þar sem stutt er í þjónustu, kaffiihús og samveru, leiðir frá bílakjallara og bílastæðum liggja um miðlæg sameiginlegt rými og sorpi og endurvinnslu er komið fyrir á miðlægum svæðum. Jarhæðir verða virkjaðar með skrifstofum fyrir minni fyrirtæki, vinnustofur hönnuða og listamanna, lesrými, samverurými eldri borgara, hárgreiðslustofur og líkamsrækt.

Vallarbyggð: Hér er sóttur innblástur mælikvarða og tilviljanakennda fegurð eldri Akureyrar, þar sem lítil og millistór hús mynda skjól, inngarða og fjölbreytta götumynd.

Brekkubyggð: Hér er hreyfanlegt landslag mannlífs, þar sem stígar, tröppur og pallar mynda samfellda tengingu og hér þróast búsetuform þar sem íbúar deila með sér sameiginlegum rýmum sem eru innfelld í brekkuna.

Skipulagið leggur áherslu á vistvæna ferðamáta, gangandi og hjólandi vegfarendur ásamt deilibílum fyrir íbúa auk góðs aðgengis að almenningssamgöngum. Bílar eru ekki útilokaðir, heldur staðsettir þannig að þeir trufli ekki mannlífið.