KÓPAVOGSDALUR – ÞRÓUNARSVÆÐI

Verkheiti:Dalvegur
Staður:Dalvegur 1, Kópavogsdalur
Stærð:ca. 2.000 m2
Verkkaupi:Samvinnuverkefni Klasa og Tendra
Verklok:

Vinningstillaga í samkeppni um nýtingu lóðar við Dalveg 1 í Kópavogi. Verkefnið var samstarfverkefni Tendra og Klasa. Gert er ráð fyrir að húsin verði Svansvottuð og að miklu leyti byggð úr endurnýttu efni.

Tillagan gerir ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi á lóðinni, þar sem skapandi greinar, verslun og mannlíf mætast í nánum tengslum við náttúru Kópavogsdals. Í hjarta svæðisins er líflegt torg með matstofu, ísbúð, markaðstorgi, leiksvæðum og árstíðabundinni varðlaug sem breytist í skautasvell. Kjarninn styrkir mannlíf í dalnum allt árið um kring og þjónar jafnframt nærliggjandi íbúðabyggð, en þúsundir Kópavogsbúa búa í göngufjarlægð við svæðið.