EIRHÖFÐI ÍBÚÐIR

Verkheiti:Eirhöfði Íbúðir
Staður:Eirhöfði 8
Stærð:18.000 m2
Fjöldi íbúða:133 íbúðir
Verkkaupi:Klasi
Verklok:Áætluð 2027

Hér er um þétta byggð að ræða en fallega staðsetningu við almenningsgarð og með möguleikum á útsýni til fjalla og sjávar. Því var lögð áhersla á að nýta dagsbirtu sem best og hámarka það útsýni sem býðst. Alrými eru því í langflestum tilvikum dregin fram að útbrún bygginganna, en sitja ekki innan við svalir. Gluggar eru einnig hafðir háir til að hámarka þá birtu sem berst inn. Þá er áhersla á að ná hornglugga í alrými þannig að sjónarhorn frá íbúðum verði víðara og bjóði upp á meira útsýni.

Alls er um að ræða 133 íbúðir í þremur húsum auk bílakjallara.