Fyllingsdalen

Verkkaupi bauð þremur aðilum þátttöku í lokaðri samkeppni um framtíðarsýn Fyllingsdalen bæjarhlutans í Bergen. Batteríið Arkitektar og Link Arkitektur í Bergen sigruðu samkeppnina en aðrir keppendur voru Snøhetta frá Noregi og BIG Architects frá Danmörku.

Um er að ræða sex hektara svæði og er gert ráð fyrir að á því rísi þétt byggð verslana, skrifstofa og íbúða.
Meginmarkmið tillögunnar er að skapa sjálfbæran bæjarhluta í manneskjulegum mælikvarða.
Byggðarmynstur tillögunnar felur í sér verulegan sveigjanleika hvað varðar þéttleika, áfangaskiptingu og framkvæmdaröðun. Byggðin er lagskipt þannig að skýr skil séu á milli verslanasvæðisins og skrifstofu- og íbúðarbyggðarinnar. Aðalsamgönguæðin myndar einskonar árfarveg sem liðast eins og fljót í gegnum hverfið frá norðri til suðurs og myndar félagslegan samkomustað akandi og gangandi fólks auk fyrirtækja og íbúa.

Bílakjallari er undir hluta svæðisins með góða tengingu upp á efri hæðirnar. Á jarðhæðum eru stórverslanir með gagnsæjum framhliðum sem snúa að aðalgönguleiðum. Ofan á þetta lag er lagt einskonar grænt teppi fyrir skrifstofu- og íbúðabyggð. Byggðin er brotin upp í 12 metra módul með línulegum grænum görðum sem tengjast grænu svæðunum beggja vegna dalsins og tryggja um leið góða dagsbirtu inn í byggingarnar. Um svæðið liggur göngustígur sem gerir fólki kleift að ferðast úr einum garði í annan með fjölbreyttri upplifun.

Við innkomu á svæðið er aðaltorgið með menningarhúsi sem er hjarta bæjarhlutans þar sem mannlífið blómstrar með veitingastöðum og litlum verslunum. Á góðviðrisdögum eru margvíslegar uppákomur á útisviði menningarhússins sem draga að fólk og gera torgið að skemmtilegum viðkomustað.

Heiti verksAuto 23 Spelhaugen samkeppni
HeimilisfangFyllingsdal, Bergen
VerkkaupiAuto 23 Spelhaugen
Stærð149.860 m²
Verklok