40Femti BF2 Verslanir og íbúðir

Götureitur í miðbæ Sola í Noregi. Samanlegt um 140 íbúðir á reitnum, 2.500m2 af verslun og þjónustu, auk bílakjallara. Lögð var áhersla á skjólgóðan sameiginlegan garð sem gegnir einnig hlutverki sem nokkurs konar almenninsgarður fyrir Sola sem tengir saman ólíka hluta miðbæjarins. Þannig glæðir garðurinn miðbæinn lífi og öfugt. Þeir hlutar bygginga sem snúa að svölum eru klæddir með timburklæðningu sem gefur hlýlegt útlit en tengir jafnframt við norskar hefðir. Húsið stallast til suð-vesturs, sem eykur sólargæði garðsvæðis og gefur jafnframt tækifæri fyrir svalir á þaki.

Heiti verks:40femti BF2 – Verslanir og íbúðir
Staðsetning:Sandesletta 27, Sola
Stærð:ca. 2.800m2 auk bílakjallara
Fjöldi íbúða:18
Verkkaupi:Masiv bygg AS
Verklok:2021