Soleglad

Hér höfum við lagt áherslu á bjartar gegnumgangandi íbúðir, nokkuð sem gefur þá upplifun að íbúðirnar séu stærri en þær eru. Stórir gluggar bjóða árstíðunum, birtunni og mikilfenglegu útsýninu í heimsókn.

Byggingin trappast, sem gerir það að verkum að hún virkar léttari, sólin kemst fyrr inn í garðinn á morgnana og vindurinn smýgur áreynslulaust framhjá. Þetta byggingarlag gerir það líka að verkum að fleiri íbúðir fá „penthouse“ gæði með stórum svölum, sem verða nokkurs konar framlenging á íbúðinni. Aðrar svalir eru almennt stærri en gengur og gerist og skilveggir úr timbri á milli svalanna skapa bæði skjól gegn vindi og innsýn.

Íbúðunum fylgir sameiginlegur garðskáli þar sem íbúar geta haldið veislur eða fundi. Einnig fylgir gestaíbúð sem íbúar geta fengið lánaða þegar gesti ber að garði.

Heiti verks Soleglad
Heimilisfang
Verkkaupi
Hönnuður
Stærð
Staða
Verklok