SÚÐAVOGUR ÍBÚÐIR
| Verkheiti: | Súðavogur íbúðir |
| Staður: | Súðavogur 9-11 |
| Stærð: | 6.600 m2 |
| Fjöldi íbúða: | 46 |
| Verkkaupi: | Súðavogur 9-11 |
| Verklok: | 2024 |
Ljósmyndir @Nanne Springer

Meginhugmyndin er að skipta húsinu upp í tvær minni einingar og brjóta þær upp þannig að upplifuð stærð bygginganna verði minni. Með þessu verður ekki til einn stór veggur gagnvart nágrönnum, heldur opnast sjónlínur á milli húsanna — í átt að voginum og sjónum.
Skiptingin skapar einnig betri gæði fyrir íbúðirnar sjálfar: langflestar íbúðir fá að njóta staðsetningar-innar og útsýnisins, og liggja vel við sólu. Með því nær kvöldsólin inn í inngarðinn, á sama tíma og nágrannar njóta morgunsólar.
Fyrirkomulagið dregur úr því að íbúar og nágrannar horfi beint á langa húshlið hússins á móti. Bilið á milli húsanna hleypur birtu í þrönga götuna og inngarðurinn opnast jafnframt fyrir gangandi vegfarendur og tengir svæðið niður að sjó. Til að hámarka enn frekar birtu og himinsýn ná gluggar upp undir loft í öllum íbúðum.






